23.1.2008 | 21:59
Garðabraut 22, Akranesi
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér í janúar að ég hef ekki haft tíma til að kaupa bíl, núna þegar ég er loksins laus úr álögunum (áramótaheitið 2006-2007). Ég hef verið að hjálpa Huldu, dóttur minni, að finna og skoða og kaupa íbúð. Það er betra að hafa öruggt húsnæði þegar barnið fæðist! Hulda og Ingimar kaupa sem sagt 3ja herb. íbúð á Akranesi, á kr. 15.400.000,00
En ekki flýta ykkur í heimsókn, þau flytja í apríl! Barnið fæðist svo í maí eða júní. Þá verður gaman
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Áslaug Kristinsdóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég doka þá bara þar til í sumar
Anna Viðarsdóttir, 25.1.2008 kl. 21:03
Já, það verður bara að bíða og bíða. Verst hvað það er dýrt í göngin, neyðist líklega til að fá mér veglykil í bílinn (eða bílana) til að fara ekki á hausinn vegna fjölda heimsókna
Áslaug Kristinsdóttir, 27.1.2008 kl. 21:35
Ég er með veglykil. Það er rosalega þægilegt, því að það er lúmskt hvað maður þarf að fara oft í göngin. Hefur reyndar aðeins minkað eftir að Oddný fór til Noregs og Alli til mín Þá er ekki eins margar ferðir á Skagann og Sigló.
Anna Viðarsdóttir, 28.1.2008 kl. 12:37
Það er alveg rétt hjá þér hvað þetta er lúmskt, ég er búin að kaupa 30 miða síðan sl. vor. Ætla að hætta að kaupa miða og fá mér lykil við fyrsta tækifæri. Það er heilmikill sparnaður fyrir þig að Alli flutti til þín!
Áslaug Kristinsdóttir, 28.1.2008 kl. 21:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.