Færsluflokkur: Dægurmál

Amma gamla tilkynnir:

Stúlkan fæddist 18.maí 2008 kl. 21:53. 13 merkur og 52 sentimetrar. Ég tók örfáar myndir og hér er ein þeirra:

18.maí 2008 007 Hamingjusöm fjölskyldaHeartInLoveHeart

Fleiri myndir á morgun


Sumarfríið undirbúið

Nú erum við byrjuð að undirbúa sumarfríið. Á sunnudaginn náðum við í fellihýsið úr vetrargeymslunni og svo erum við komin með þvottavél í jeppann. Við ætlum að fara á norðaustur-hluta landsins, Raufarhöfn, Bakkafjörð, Vopnafjörð og fleiri staði sem ég hef aldrei komið á. Og þá er nú gott að geta þvegið fötin jafnóðum og þau óhreinkast, alveg glatað að vera í fríi með fullt af skítugum fötum í bílnum, en við erum sem sagt búin að finna lausn á þessu vandamáli. Við eigum bara eftir að leysa smá-tengingavandamál, en það eru tveir rafgeymar í jeppanum og svo vantar okkur kannski vatn í þvottavélina, en við hljótum að finna það einhvers staðarUndecided Jeppi með þvottavél 001

Búðaferð

Um helgina fórum við í ferðalag. Við lögðum af stað á laugardaginn og byrjuðum á að fara upp á Akranes og heimsækja Huldu og Ingimar en þau eru nýflutt í íbúðina sem þau keyptu. Eftir að hafa drukkið kaffi hjá þeim og gefið þeim borvél og fleira í innflutningsgjöf fórum við á Snæfellsnesið, á Hótel Búðir, við vorum nefnilega með gjafabréf; gisting og morgunverður. Við borðuðum kvöldmat þarna sem var mjög eftirminnilegur, 6 fisk- og kjötréttir sem voru ansi skemmtilegir. Þetta er kallað KENJAR KOKKSINS.  Fyrst kom humarsúpa með japönsku-ívafi, súpan+einn humar sem var í kaffibolla! Svo fengum við saltfiskstöppu, hrefnutartar, ál (reyktan), steikt folaldakjöt, grillaðan gíraffa og svo kom venjulegt lambakjöt, sem passaði engan veginn við allt sem á undan kom. Við fengum svo ýmiskonar hvít og rauð vín með öllum þessum réttum, það var alltaf skipt um hnífapör og glös í hvert skipti sem við fengum nýjan rétt. Þetta var mjög sérstakt og seinlegt. Við vorum að borða í tæpa 3 klukkutímaWhistling  Við fengum svo kaffi með okkur inn á herbergið og bragðbættum það með viskýi og tefldum nokkrar skákir (við erum nefnilega alltaf að æfa okkur fyrir Norðurlandamótið) Við vöknuðum svo alveg eldhress morguninn eftir og eftir að hafa borðað hefðbundinn morgunmat (kaffi og brauð) fórum við að skoða Snæfellsjökul.Búðaferð 010 Það var heilmikill snjór þarna og ég var ekki í neinu jöklastuði, enda komið sumar, svo að við fórum aftur á Akranes til Huldu og Ingimars. Við pössuðum okkur á að vera hjá þeim á kvöldmatartíma og Hulda töfraði fram lambasteik og soðnar kartöflur og með þessu hafði hún bernaise-sósu, maís og gulrætur. Kók var drukkið með þessum mat, ekkert vínsull. Hulda hefur greinilega ekki eins mikið hugmyndaflug og kokkurinn á Búðum en þatta var mjög góður og fljótétinn matur. Við vorum svo komin í Blöndubakkann um níu-leytið, mjög ánægð með skemmtilega helgi. 

Framtíðarplan

Ég er búin að ákveða hvað ég ætla að gera þegar ég verð orðin gömul og hætt að vinna. Ég ætla að fara mikið í strætó og pirra vagnstjórana á ýmsa vegu. Ég var að keyra leið 3 í gær og það komu nokkrar gamlar konur í vagninn hjá mér sem gáfu mér fullt af hugmyndum hvernig má pirra vagnstjóra á auðveldan hátt. Ég ætla ekki að upplýsa meira hérna en það á eftir að verða gaman hjá mér eftir ca.20-30 ár Devil

Tíu

Nú er ég búin að fá einkunnir úr bókhaldsprófinu. Allar einkunnir eins hjá mér, sama og í verslunarreikningsprófinu. Næsta uppgjör hjá Starfsmannafélagi SVR ætti ekki að vefjast fyrir mér. Svo þarf ég bara að finna mér nýja vinnu. Ég gæti kannski líka notað Pólóinn til að skutlast á milli fyrirtækja þegar ég fer að leita mér að vinnuCool

Kennslubifreið

Bílar! 002Nú er Elantran búin að fá hlutverk í lífinu: Hún er orðin KENNSLUBIFREIÐ og nú eru spennandi tímar framundan hjá henni!!Elantra 010 Nú eru pedalar bæði hægra og vinstra megin.

Fallandi blöð

Þegar feitasta og þyngsta manneskjan var búin með páskaeggið fékk hún sér annað páskaegg og þá kom málshátturinn: Hve hátt sem tréð er, falla þó blöð þess til jarðar.

Gleðilega páska

Feitasta og þyngsta manneskjan á heimilinu fékk málsháttinn "Enginn er svo rammvilltur að ei rati í munninn". Og á meðan hún var að melta málsháttinn, kláraði hún næstum allt páskaeggið (og þetta var ekki lítið páskaegg)Frown

Skírdagur

Í dag voru allar partasölur lokaðar. Þá var ekkert annað hægt að gera en skreppa til Selfoss að  sjá hvar Fischer er grafinn. ýmisl 014 Ég tók nokkrar myndir og svo fórum við í fermingarveislu í Golfskálanum. sem er þarna rétthjá kirkjunni. Mjög góður matur í veislunni og kökurnar hrikalega góðar. Ég át aðeins of mikið. En á morgun ætla ég að keyra strætó. 

Bíl-hlutir

Jæja, verð að segja ykkur hvernig gengur með bílasmíðina. Í gær var hringt í mig frá Vöku kl. 9:19 og tilkynnt að þeir væru búnir að finna húdd og bretti fyrir mig. Ég var föst að keyra strætó til kl. 14:27 en fór svo í leiðangur eftir vinnu. Ég fór í stillingu og keypti bremsuborða, kostuðu ekki nema 2307krónur, svo fór ég í Vöku og keypti húdd og bretti sem kostuðu bara 8 þúsund krónur. En ég er búin að reikna út að það verður frekar seinlegt og dýrt að smíða bíl svona, held að ég verði bara að aflétta þessu bílakaupabindindi af mér. Það er líka svo óþægilegt fyrir mig að vera í svona bindindi. Ég var að keyra strætó, leið 3 og var mjög djúpt hugsi um hvernig ég gæti farið framhjá þessu bindindi, hvort ég gæti keypt bíl og sett Corollu eða Elöntru upp í og borgað eitthvað á milli eða hvort ég ætti að kaupa einn bíl og setja tvo uppí. Og á meðan þessar djúpu hugsanir fóru fram í hausnum á mér, gleymdi ég að beygja inn í Vesturbergið, ég lenti í smá vandræðum, þurfti að snúa við og bakka, en farþegarnir kvörtuðu ekki og bílaumferðin stoppaði á meðan ég bakkaði, en þetta bindindi er farið að trufla vinnuna hjá mér, neyðist því til að hætta í þessu bílakaupastoppi  og vonandi fáið þið fréttir af bílakaupum hjá mér fljótlegaCool

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Áslaug Kristinsdóttir

Höfundur

Áslaug Kristinsdóttir
Áslaug Kristinsdóttir

Ferðalög, fréttir, fjölgun, fjölskyldan, farartæki, fótknúin farartæki, fróðleikur, fasteignir, fjör, fermingar, fjárfestingar,

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • IMG_0001
  • Ferðalag 221
  • Ferðalag 101
  • Ferðalag 096

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 32227

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband