Færsluflokkur: Dægurmál

Skírn á morgun!!

Á morgun kl. 14:00 verður barnabarnið skírt og þá loksins fæ ég að vita nafnið. Ég er búin að baka tvær tertur í dag og í fyrramálið ætla ég að baka eitthvað meira. Það var bara mjög gott að fá þetta bökunar-verkefni svo að ég gæti aðeins róað taugarnar, en þetta er auðvitað mjög taugastrekkjandi að þurfa að bíða svona lengi eftir að fá að vita hvað stelpan á að heita. Svo fór ég í Mjóddina í dag og keypti handa henni skírnargjöf, rosalega flottan bíl!! Á morgun verður svo upplýst hér á þessari bloggsíðu hvað daman heitir Wink

Skemmtilegur dagur

Í gær (1.júlí) kl.11:00 fór ég í Frumherja á Hesthálsi til að taka skriflegt mótorhjólapróf. Prófið er svipað prófunum sem fólk þarf að taka þegar það tekur bílpróf; 30 spurningar, 15 spuringar í A-hluta og þar má ekki vera með nema 2 villur og í B-hlutanum eru líka 15 spurningar en þar eru 5 villur leyfðar. Spurningarnar eru mjög ruglingslegar og auðvelt að falla. Þetta er krossapróf, 3 möguleikar gefnir í hverri spurningu og rétt svör geta verið allir möguleikar eða einn eða tveir. Mér tókst að ná prófinu, var með allt rétt í A-hlutanum en í B-hlutanum var ein spurning sem ég var ekki viss með, ég spurði konuna sem sat yfir okkur hvort ég mætti hringja í vin en hún vildi ekki leyfa mér það. Ég var því með villu í B-hlutanum (ég setti einn kross á rangan stað og það eru tvær villur). En nú er ég sem sagt búin að ná þessu og svo er bara eftir að taka nokkra æfingatíma á mótorhjól og taka svo verklega prófið. Ég er búin að hugsa um þetta í mörg ár og alveg ótrúlegt að ég skuli loksins láta verða af þessu. Að verða amma hefur kannski haft þessi áhrif á migCool

Ég fór svo að keyra strætó um kvöldið, leið 6. En það kom í ljós að það var einhver púki í mér, sjálfsagt af því að ég náði prófinu. Ca. tvítug stelpa kom inn í vagninn hjá mér á Hverfisgötunni og byrjaði að leita í vösunum, hún fann enga peninga svo hún spurði hvort hún mætti sleppa við að borga. Ég spurði hana hvort hún væri ekki með einhverja peninga, þó ekki væri nema aðeins upp í fargjaldið, en hún sagðist ekki vera með neitt. Og þar sem rigningin var all-svakaleg sagði ég við hana: "Það er svo gott veður að þú getur bara labbað heim."  Svipurinn sem kom á stelpuna var mjög skemmtilegur, hún hélt að ég ætlaði að henda henni út í rigninguna og að hún yrði að labba alla leið upp í Grafarvog, enda var ég mjög alvarleg. En svo lofaði hún að borga tvöfalt næst og ég leyfði henni að fljóta með. Svo kom önnur stelpa en hún átti bara þúsundkall, hún var í úlpu með mörgum vösum og sagðist ekki finna neitt klink. "Ertu örugglega búin að leita í öllum vösunum" spurði ég og var auðvitað mjöööög alvarleg á svipinn. Hún hélt áfram að leita og sagðist ekki finna neina smápeninga. "Jæja, úr því að þú finnur ekkert klink þá verður þú bara að borga þúsundkall" Stelpugreyið horfði með skelfingarsvip á mig og stakk hendinni í vasann þar sem þúsundkallinn var og ætlaði greinilega að gera eins og ég sagði henni. En þá brosti ég aðeins og sagði við hana: Ég er bara að grínast, þú borgar bara seinna. Og hún var svo fegin að hún flýtti sér aftast í vagninn og hlammaði sér niður þar. En vonandi passar hún betur upp á klink-eign sína í framtíðinni.

Það getur verið gaman að keyra strætó en núna er ég komin tímabundið í annað starf hjá fyrirtækinu: ég er á Hlemmi í upplýsingum, leiðbeini fólki og sel því miða og kort. Og það er ekkert grín.  


Skemmtileg helgi

Á laugardaginn lögðum við af stað kl. 18:30 út úr bænum með fellihýsið í eftirdragi. Við ætluðum að sjá hvernig fellihýsið væri eftir vetrarhvíldina. Þegar við lögðum af stað vorum við ekki búin að ákveða hvar við ætluðum að gista, en við byrjuðum á að fara til Hveragerðis, fengum okkur hamborgara og franskar á Kaffi Kidda rót. Á meðan við borðuðum ákváðum við að kíkja á Flúðir. Við vorum komin þangað rétt fyrir klukkan tíu, en við sáum ekkert pláss fyrir okkur þar svo að við flúðum Flúðir og geystumst á Geysi. Þar er tjaldsvæði og þar var nóg pláss fyrir okkur. Við vorum svo þar um nóttina og ég svaf mjög vel þrátt fyrir að hafa drukkið mikið kaffi, en þetta var reyndar írskt kaffiTounge  Við vorum að vonast eftir sólskini á sunnudeginum en það var bara súld og ekkert gaman, við brunuðum því í bæinn fljótlega eftir hádegi. Þegar við komum heim voru Hulda og Ingimar með snúlluna í heimsókn hjá okkur. Sú stutta var bara í góðu skapi og stakk upp á að foreldrarnir færu í bíó til að amma gæti passað hana á meðan. H&I fóru í bíó kl. 17:30 og þá var gaman í Blöndubakkanum. Amma passaði barnabarnið í fyrsta skipti Smile það gekk mjög vel og nú bíða allir spenntir eftir að Hulda og Ingimar fari aftur í bíó.


Ferðalag endar

Við lentum á Keflavíkurflugvelli kl. 15:25 í dag og þar með var þessi 12 daga skák-og skemmtiferð á enda. Það var ýmislegt skemmtilegt sem við gerðum í þessari ferð, t.d. fórum við í strætó í gær, fyrst fórum við með lest frá Globen í Slussen, þar fundum við (eftir langa leit) strætó nr. 442 og þó að það væri kona að keyra, þá fórum við alveg óhrædd um borð, við fórum svo úr vagninum þegar við sáum Önnu frænku. Hún fór svo með okkur heim til Guðrúnar og Styrmis. Ég ætla ekkert að segja meira frá hvað við gerðum í gær, því að Anna frænka var með okkur allan daginn og það er bara hún sem les þetta. Anna, eigum við ekki að kíkja saman á Fridays þegar þú kemur heim? Það eru 2-3 réttir á matseðlinum sem við náðum ekki að prófa í gærFootinMouth

 


Tallinn

Nú erum við komin úr ferðinni til Tallinn. Við fórum þangað með hraðbát, sem fór á 70 km hraða og var tæpar 90 mínútur á leiðinni. Í Tallinn var margt að sjá, við sáum til dæmis Íslandstorgið, en af því að við Íslendingar vorum fyrsta þjóðin til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands, þá fengum við torg nefnt eftir landinu okkar. Þetta er að vísu mjög ómerkilegt torg að öðru leitiShocking

Verðlag í Tallinn kom okkur verulega á óvart, allt var alveg rosalega dýrt og sumt jafnvel dýrara en í Finnlandi og er þá mikið sagt. Við keyptum því næstum ekkert þarna, tókum bara nokkrar myndir og ég fékk mér einn bjór. Björgvin, ég fann engan jarðskjálftamæli. Og í Tallinn er enginn HarryCrying  


Segulfréttir handa Önnu

Þegar ég var búin að tefla í morgun, fékk ég mér göngutúr í miðbæinn. Ég ætlaði að kíkja í nokkrar búðir og finna segul á ísskáp merktan Helsinki handa Önnu frænku, af því að hún gleymdi að kaupa svoleiðis þegar hún var hérna. Ég komst að því að það eru fleiri en hún sem hafa gleymt því, allar búðir eru fullar af ísskápaseglum merktum Helsinki. Ég keypti nokkur stykki og það verður spennandi að sjá hvort Anna á nógu stóran ísskáp fyrir alla seglana. Á morgun förum við til Tallinn og þá ætla ég að kaupa eitthvað allt annað en segulCool


Shakkikoti

Jæja, nú eru búnar 6 umferðir af 7 í skákmótinu. Ég er með 3 vinninga og í síðustu umferðinni tefli ég við Arne Danielsen frá Osló, en hann hefur 13 sinnum orðið NSU-meistari. Ég ætla að vinna hann. En aðstæður á skákstaðnum eru ekki góðar, reyndar mjög slæmar. T.d. er ekkert kvennaklósett á staðnum, það er bara eitt karlaklósett með pissuskál og kámugu klósetti og lyktin þar inni er frekar ógeðsleg. Ég kíkti þarna inn fyrsta daginn og ákvað að fara ekki þarna inn oftar, þetta hefur truflað mig í mótinu, en í morgun fór ég í gönguferð (ég drakk aðeins of mikið kaffi með morgunmatnum) og leitaði að bar í nágrenni við skákstaðinn. Ég fann flottan bar og keypti mér bjór sem kostaði 3,30 € og mátti þá fara á klósettið þar, en bjórdrykkjan varð til þess að ég varð að hlaupa nokkrum sinnum milli skákstaðar og barsins. Í fyrramálið ætla ég að drekka bara hálfan bolla af kaffi og reyna að vera fljót með skákinaWink Það er enginn finni með í mótinu, við fengum bara lykla að þessu skákkoti. Þetta er ótrúlegur staður, töflin eru öll gömul og skítug og mjög draslaralegt þarna. Fyrsta daginn voru menn að undra sig á ástandinu þarna og einhver spurði hver væri eiginlega umsjónarmaður þarna og einn Norðmaðurinn var snöggur að svara:"Mister Clean".

En á morgun klárast þetta mót og á laugardaginn er stefnan tekin á Tallinn. Við ætlum að fara með hraðbát yfir það tekur ca.100 mínútur og svo á að reyna að versla eitthvað þar, hér í Helsinki er allt svo dýrt að það er varla hægt að kaupa nokkuð. Enginn Harry í HelsinkiW00t


Suomiska

Helsiknin yliopiston ylioppilaskunta kannattaa Sininauhaliiton suunnitelmaa perustaa asunnottomien toimintakeskus ja tukiasuntoja Töölöön. Vuonna 2006 mies siirsi 17 euroa toiselle ja huomasi, summa tilille vaikkei toiselta takia vaatii espoolaiselle noin kolmen vuoden ehdotonta vankeusrangaistusta.

Hvar er Þorsteinn nú?


Helsinki

Nú er ég í Finnlandi, hjá þjóðinni sem býr til alla NOKIA-símana. Ég skil ekki hvernig þetta fólk getur búið til alla þessa síma, því að það er alveg gjörsamlega ómögulegt að skilja það. Tungumálið er alveg rosalega furðulegt. En ég ætla að taka smá finnskuámskeið á morgun og svo fáið þið smá sýnishorn ef allt gengur vel. Þetta er kannski ekkert mjög erfitt mál; ég sá verslun sem heitir KAUPPA og ég skildi það alveg, ég fór bara inn í búðina til að kaupa. Það gekk mjög vel. En sem sagt á morgun kemur vonandi finnska. Invalideilla ja vankuksille. 

Eurovision-kvöld Um borð í ferjunni til Helskini Evróvisionkvöldið!


Nýjar myndir af nýju barni

Ég skrapp í heimsókn upp á Akranes þegar stelpan var orðin 15 klukkutíma gömul og tók nokkrar myndir, hér eru tvær þeirra:

Litla 016

Litla 014


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Áslaug Kristinsdóttir

Höfundur

Áslaug Kristinsdóttir
Áslaug Kristinsdóttir

Ferðalög, fréttir, fjölgun, fjölskyldan, farartæki, fótknúin farartæki, fróðleikur, fasteignir, fjör, fermingar, fjárfestingar,

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • IMG_0001
  • Ferðalag 221
  • Ferðalag 101
  • Ferðalag 096

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband