Honda Shadow

Já, ég er búin að kaupa Hondu 750 árgerð 2005. Þetta er rosalega stórt hjól og mjög erfitt að stjórna því en núna er ég búin að fara í 1. hjólatúrinn og það gekk stórslysalaust en hjartslátturinn var stundum soldið mikill. Ég lærði á Hondu 250 og mér fannst það passleg stærð svo að 750 er eiginlega of stórt en kannski venst ég því eftir nokkra hjólatúra í viðbót.

Honda 026Honda 032Hérna eru myndir af mér á þessu risastóra hjóli.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með þetta stórglæsilega stofustáss!  - - - Það er verst hvað svona lagað er smitandi! Nú er ég alveg friðlaus. Mig langar svo í nýtt hjól, því að mitt gamla DBS er orðið svo lúið. Ekki að furða; það er árgerð 1978. Nú stefni ég á glænýtt 10 gíra fjallahjól, "beint úr kassanum", jafnvel þó að það kosti mig upp undir 30 þúsund,  - - -  maður fer nú ekki með peningana með sér í gröfina!!

Kristinn B. Þorsteinsson, (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 11:02

2 Smámynd: Anna Viðarsdóttir

Til hamingju með skellinöðruna frænka

Anna Viðarsdóttir, 6.9.2008 kl. 13:58

3 Smámynd: Áslaug Kristinsdóttir

Takk fyrir hamingjuóskirnar. Skellinaðra eða stofustáss??  En kannski er næst á dagskrá hjá mér er að kaupa íbúð eða hús með stórri stofu, þannig að ég hafi pláss fyrir Honduna inni hjá mér og geti horft á hana ef eitthvað leiðinlegt er í sjónvarpinu

Áslaug Kristinsdóttir, 7.9.2008 kl. 08:29

4 identicon

Nú er hann Arnar Máni orðinn ríkur:    Hann á tvær frænkur, sem eiga mótorhjól!  Snædís Eir er þó ennþá ríkari: Hún á ömmu, sem á Hondu 750;   mótorhjól af stærstu gerð. Það eru því miður mjög litlar líkur á að ömmur Arnars Mána kaupi sér mótorhjól á næstunni!

Kristinn B. Þorsteinsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 18:29

5 Smámynd: Hulda Björnsdóttir

Þetta er stórt og fallegt hjól. Hvenær má ég máta það? ..eða er það kannski ekki ráðlagt þar sem þetta er bráðsmitandi?

Hulda Björnsdóttir, 11.9.2008 kl. 03:21

6 Smámynd: Áslaug Kristinsdóttir

Held að þú ættir ekki að setjast á hjólið, mótorhjólabakterían er bráðsmitandi

Áslaug Kristinsdóttir, 15.9.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Áslaug Kristinsdóttir

Höfundur

Áslaug Kristinsdóttir
Áslaug Kristinsdóttir

Ferðalög, fréttir, fjölgun, fjölskyldan, farartæki, fótknúin farartæki, fróðleikur, fasteignir, fjör, fermingar, fjárfestingar,

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_0001
  • Ferðalag 221
  • Ferðalag 101
  • Ferðalag 096

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 32111

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband